2.0 Stofna aðgang í Reglu
Til þess að stofna aðgang í Reglu þá þarf að fara inná www.regla.is og velja ,,Nýskráning''.
- Smelltu á ''Nýskráning''
- Sláðu inn kennitölu (Notið 99 og fyrstu 8 stafina í ykkar kt.)
- Sláðu inn fullt nafn
- Sláðu inn tölvupóstfangið þitt (ATH! skrá skólanetfangið ef á við)
- Hakið við ''Samþykkja skilmála''
- Smelltu á ''Nýskráning''
Þú færð sendann tölvupóst með notendanafni, lykilorði og link til þess að ljúka við nýskráningunni. Þú smellir á linkinn í tölvupóstinum (ATH! mjög mikilvægt að nota þennan link) og skráir þig inn með notendanafninu og lykilorðinu.
Í næstu mynd þarft þú að fylla inn viðeigandi upplýsingar:
- Sláðu inn símanúmer
- Sláðu inn heimilisfang
- Veldu póstnúmer
- Veldu kerfiseiningar: Fjárhagsbókhald, Sölu- og birgðakerfi, Launakerfi
- Smelltu á "Áfram"
Leyfa popup (Allow popup)
Ýmsir hlutar kerfisins nota popup virkni og gæti þá komið melding um það í vafra. Veljið þá að leyfa alltaf popup frá þessari síðu (Always allow popup from this website). Þá ætti sú melding ekki að koma oftar við notkun kerfisins.